9D ferðalög á Zoom í apríl
Þú kaupir eitt eða tvö, hefur aðgang í 30 daga !! Vorhreingerning með meiru.
Service Description
Á dagskrá verða tvö ferðalög í apríl. 7. apríl - Ferðalagið Awakening - sem er meðal annars hannað til að hjálpa þér að finna styrkinn þinn og losna frá skilyrðingum samfélagsins, áreiti og ytri stjórn. Dásamlegi 9D hljóðheimurinn ásamt kröftugri öndun hjálpa þér að ýta út gömlum skilyrðingum og prógrömmum úr kerfinu þínu. Þér er hjálpað að finna sátt og samþykki, hugrekki, sterkari sjálfsmynd og þakklæti. Einnig að virkja tilfinningalega seiglu, innri frið og nýja tilfinningu fyrir jafnvægi. 21. apríl - Ferðalagið System reset - Í þessu ferðalagi ýtir þú á stóra endurræsingahnappinn innra með þér. Frábært ferðalag til að ýta burt tilfinningaflækjum, gömlum forritum og innri óreiðu. 9D hljóðheimurinn og öndunin færa þig djúpt og þú ferðast frá þyngslum inn í enn meiri léttleika. Þú tengist styrknum þínum og fær tækifæri til að eflast, finnast þú léttari, skýrari og með enn betri tengingu við styrkinn þinn. Bæði ferðalögin eru góð endurræsing og frábær vorhreingerning á kerfinu. Þú kaupir stakt ferðalag á 4900.- Þú kaupir bæði ferðalögin á 8500.- Þú færð link með upptöku að hvoru ferðalagi sem þú getur nýtt í 30 daga frá dagsetningu ferðalags. Ef þú skráir þig en kemst ekki, þá færðu linkinn sendan. Þú færð góða fræðslu um 9D Breathwork og undirbúning fyrir ferðalagði. Allar nánari upplýsingar fara í gegnum jogasolla@gmail.com Ég hlakka til að sjá þig í vor hreingerningunni :)
Cancellation Policy
Net tími sem hefur verið bókaður og greiddur fæst ekki endurgreiddur en getur gengið upp í Zoom tíma, netnámskeið eða einkatíma.
Contact Details
8658184
jogasolla@gmail.com
Hólaland 18, Stöðvarfjörður, Iceland
