Jógaganga fyrir hópinn þinn !
Mild ganga með hressandi jógaæfingum í fallegu umhverfi Stöðvarfjarðar fyrir einkahópa.
Service Description
Gengið í fallegu umhverfi Stöðvarfjarðar, stoppað á vel völdum stöðum og æfingar gerðar. Sest í hugleiðslu og ef þurrt er á jörð er lagst í mosann í slökun. Dásemdar endurnæring. Lágmarksfjöldi sex. Hámarksfjöldi tólf. Verð: 8500.- á mann (ef óskað er eftir kakóbolla og smá kakóstund bætast 500 kr við verðið). Þátttakendur klæðast eftir veðri - Engin jógaganga er eins, hún er misjöfn eins og veðrið og árstíðirnar. Stundum blæs og þá erum við meira á hreyfingu. Ef jörð er þurr finnum við okkur góðan stað til að setjast í stutta hugleiðslu og gerum einhverjar æfingar á jörðinni og leggjumst jafnvel í mosann í smá slökun. Valin er leið sem hentar viðkomandi hópi best. Jógakunnáta er ekki skilyrði og hver og einn gerir þær æfingar sem henta hverju sinni. Lágmarksfjöldi eru sex þátttakendur, hámark tólf.


Cancellation Policy
Mikilvægt er að afbókun berist ekki síðar en 24 stundum fyrir gönguna. Ef fjöldi fer undir lágmark, breytist verð á hvern einstakling. Gangan er greidd í einu lagi frá þeim einstaklingi eða fyrirtæki sem pantar fyrir hópinn. Hafi gangan verið greidd fyrir afbókun er boðið upp á að finna annan tíma sem hentar.
Contact Details
Hólaland 18, Stöðvarfjörður, Iceland
